Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 583, 127. löggjafarþing 281. mál: innflutningur dýra (heimild til gjaldtöku).
Lög nr. 142 21. desember 2001.
Eigendur dýra og erfðaefnis greiða gjöld fyrir þjónustu sóttvarna- og einangrunarstöðva samkvæmt gjaldskrá er landbúnaðarráðherra setur. Við ákvörðun um gjaldskrá skal við það miðað að tekjur sóttvarna- og einangrunarstöðvar standi undir útgjöldum hennar, svo sem almennum rekstrarkostnaði, launakostnaði, leigugjöldum, fóðurkostnaði, lyfjakostnaði og dýralæknaþjónustu, kostnaði við sýnatökur og rannsóknir og opinberum gjöldum.
Þingskjal 583, 127. löggjafarþing 281. mál: innflutningur dýra (heimild til gjaldtöku).
Lög nr. 142 21. desember 2001.
Lög um breytingu á lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein er orðast svo:Eigendur dýra og erfðaefnis greiða gjöld fyrir þjónustu sóttvarna- og einangrunarstöðva samkvæmt gjaldskrá er landbúnaðarráðherra setur. Við ákvörðun um gjaldskrá skal við það miðað að tekjur sóttvarna- og einangrunarstöðvar standi undir útgjöldum hennar, svo sem almennum rekstrarkostnaði, launakostnaði, leigugjöldum, fóðurkostnaði, lyfjakostnaði og dýralæknaþjónustu, kostnaði við sýnatökur og rannsóknir og opinberum gjöldum.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 13. desember 2001.